Fótbolti

FC Bayern vann Stuttgart í átta marka leik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mario Gomez skoraði þrennu í dag en hann fagnar hér einu af mörkum sínum.
Mario Gomez skoraði þrennu í dag en hann fagnar hér einu af mörkum sínum.

Tveir leikir fóru fram í efstu deild Þýskalands í dag. Bayer Leverkusen og Freiburg gerðu 2-2 jafntefli og FC Bayern vann Stuttgart 5-3.

Bæjarar voru með 3-0 forystu í hálfleik með mörkum frá Mario Gomez, Franck Ribery og Thomas Müller. Martin Harnik minnkaði svo muninn snemma í seinni hálfleik áður en Gomez bætti við tveimur mörkum og innsiglaði þrennu sína.

Harnik skoraði svo sitt annað mark áður en Christian Gentner minnkaði muninn í 5-3 sem urðu lokatölur leiksins.

Bayern er í fimmta sæti deildarinnar en Borussia Dortmund er með pálmann í höndunum í toppsætinu, hefur tíu stiga forystu á Mainz og Leverkusen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×