Innlent

Á slysadeild eftir árekstur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sjúkrabíll flutti manninn á slysadeild. Mynd/ Vilhelm.
Sjúkrabíll flutti manninn á slysadeild. Mynd/ Vilhelm.
Ökumaður bíls var fluttur á slysadeild eftir að bíllinn hafnaði á öðrum bíl á Höfðabakka á fjórða tímanum í dag. Sjúkralið, lögregla og tækjabíll frá slökkviliðinu voru kallaðir á staðinn en ekki kom til þess að beita þyrfti klippum vegna slyssins. Ökumaðurinn mun hafa hlotið minniháttar meiðsl. Aðrir slösuðust ekki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×