Sakar Gunnar um lýðskrum 19. desember 2010 13:15 Guðríður Arnardóttir er formaður bæjarráðs Kópavogs.
Fjárhagsáætlun Gunnars Birgissonar einkennist af lýðskrumi og er að mörgu leyti óraunhæf, segir formaður bæjarráðs í Kópavogi. Ekki verði komist í gegnum 800 milljóna króna hagræðingu án þess að hækka gjaldskrár. Gunnar Birgisson bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs segir að fjárhagsáælun meirihlutans sé árás á ungar barnafjölskyldur og íþróttafélög bæjarins. Hann vill ganga mun skemur í skattahækkunum og hefur lagt fram sína eigin fjárhagsáætlun. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi gefur lítið fyrir hugmyndir Gunnars. „Mér finnst það nú einkennast mest megnis af popúlisma þessi áætlun sem hann er að setja fram. Margt í þessu hjá honum er frekar óraunhæft. Hann er með flatar niðurskurðartillögur á flesta liði. Og það sem hann er að leggja til núna það höfum við skorið af fyrir ári síðan. Það er ekki eftir miklu að slægjast í grunnskólunum. Þannig að við höfum reynt að setja þetta þannig upp að fara í frekari strúktúrbreytingar og skipulagsbreytingar heldur en að ráðast í þennan flata niðurskurð," segir Guðríður. Kópavogur er mjög skuldsett bæjarfélag en meirihlutinn stefnir að því að lækka skuldir um 1 milljarð á næsta ári. Guðríður segir brýnt að setja fram raunhæfa áætlun sem miði að því. Fjárhagsáætlunin er lögð fram af ellefu bæjarfulltrúum og unnin í nánu samstarfi við starfsfólk bæjarins, að sögn Guðríðar. „Hún er raunhæf og við miðum hana við þær aðstæður sem við erum að takast á við. Það er ekki hægt að komast í gegnum 800 milljóna króna hagræðingu án þess að hækka gjaldskrár," segir Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs.
Mest lesið Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Fréttir „Ég lagði allt undir“ Innlent Fleiri fréttir Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Sjá meira