Innlent

Bréfberi tapaði skaðabótamáli eftir hundsbit

Hundur beit bréfbera.
Hundur beit bréfbera.

Tæplega fimmtugur bréfberi, sem var bitinn af hundinum Skugga við skyldustörf, tapaði máli í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem hann krafðist þess að eigendur Skugga væru gerðir skaðabótaskyldir vegna árásar hundsins. Þá stefndi hann einnig tryggingafélagi eigendanna.

Hundurinn réðst á manninn í mars 2006. Bréfberinn kom að húsi þar sem ung stúlka á heimilinu opnaði fyrir honum og kastaði bréfberinn þá póstinum á gólfið. Svo virðist sem Skuggi hafi túlkað gjarðir bréfberans sem árás og réðist því á hann og beit í vinstri mjöðmina. Þá rifnuðu buxurnar hans við árás Skugga.

Bréfberinn heldur því fram að vörslu hundsins hafi verið ábótavant. Þá segir í stefnugerð bréfberans að með því að hafa hundinn lausan við bréfalúgu sé ljóst að hjónin hafi látið sér í léttu rúmi liggja þá hættu sem gæti stafað af honum og hafi þar verið um að ræða saknæma háttsemi og brot á ákvæðum samþykktar um hundahald.

Svo segir að bréfberinn hafi verið að sinna starfi sínu sem póstburðarmaður og ekkert í fasi hans eða framkomu hafi á nokkurn hátt verið ógnandi og til þess fallið að réttlæta viðbrögð hundsins og árás hans á bréfberann.

Orðrétt segir í niðurstöðu dómsins: „Eftir slysið hefur slasaði fengið einkenni um áfallastreitu þar sem hann endurupplifir slysaatburðinn, dreymir um hann, er mjög hræddur og hvekktur við að sjá hunda, sérstaklega ef þeir koma aftan að honum eða eru stórir."

Dómari héraðsdóms tekur ekki undir með bréfberanum að eigendur hundsins séu skaðabótaskyldir í ljósi þess að hann hlaut engan varanlegan líkamlegan skaða af. Aftur á móti er viðurkennt að bréfberinn hafi orðið fyrir „mjög vægri andlegri truflun" eins og það er orðað í dómnum.

Varanleg örorka er metin 2 prósent vegna þess. Voru eigendurnir því sýknaðir af skaðabótakröfunni sem og tryggingafélagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×