Fótbolti

Bild: Raul búinn að semja við Schalke

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raul.
Raul. Mynd/AFP
Þýska blaðið Bild segir frá því í dag að spænski leikmaðurinn Raul sé að ganga frá tveggja ára samning við þýska liðið Schalke 04 en hann var ekki inn í framtíðaráformum Jose Mourinho á Santiago Bernabeu.

Hinn 33 ára gamli leikmaður hefur spilað hjá Real Madrid alla sína fótboltatíð (16 tímabil frá 1994) en hann fær nú sex milljónir evra fyrir samninginn hjá Schalke 04 sem gera 476 milljónir íslenskra króna í laun á ári.

Real Madrid hefur samþykkt að segja upp samningi Raul við félagið sem átti að renna út á næsta ári. Raul skoraði 228 mörk í 550 deildarleikjum fyrir félagið og alls 66 mörk í 135 leikjum í Meistaradeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×