Fótbolti

Moldsked: Stórslys ef við töpum þessu niður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Norski markvörðurinn hjá KR, Lars Ivar Moldsked, átti fínan leik í marki KR gegn Glentoran í kvöld og hélt marki sínu hreinu. Hann varði eitt dauðafæri og greip vel inn í leikinn.

Leikur hans sífellt að batna og Norðmaðurinn var brosmildur eftir leikinn í kvöld.

"Það var mikilvægt að halda hreinu í kvöld og það verður afar erfitt fyrri Glentoran að skora fjögur mörk gegn okkur á sínum heimavelli," sagði Norðmaðurinn kátur.

"Aðstæður í kvöld voru afar erfiðar og því er enn ánægjulegra að halda hreinu. Við erum augljóslega með mun sterkara lið. Það sást strax í upphafi," sagði Moldsked en hann er augljóslega afar bjartsýnn fyrir seinni leikinn.

"Það yrði stórslys ef við töpum þessu niður. Þá eigum við líka ekki skilið að fara áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×