Hreyfingin krefst afsagnar forsætisráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. október 2010 16:02 Hreyfingin vill að Jóhanna segi af sér embætti og forsetinn skipi nýja stjórn. Mynd/ Vilhelm.
Þingmenn Hreyfingarinnar vilja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segi af sér embætti og forseti Íslands kanni hvort vilji sé fyrir því á meðal þingmanna að hann skipi nýja stjórn. Reynist ekki þingmeirihluti fyrir því að verja slíka neyðarstjórn vantrausti muni forseti boða til alþingiskosninga. Verði hins vegar meirihluti í þinginu fyrir skipan nýrrar stjórnar muni forseti Íslands gera tillögu að neyðarstjórn. Þingmenn Hreyfingarinnar telja að tillaga forseta Íslands geti annað hvort falist í uppástungu að forsætisráðherra sem velji sér samráðherra eða tillögu að öllum ráðherrum slíkrar ríkisstjórnar. Þeir vilja svo að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um tillögu forseta Íslands að neyðarstjórn. Kosið verði um neyðarstjórnina í heild sinni. Verði neyðarstjórninni hafnað þá verði boðað til alþingiskosninga. Þingmenn Hreyfingarinnar hafa sent forseta Íslands þessa tillögu. Þeir segja í yfirlýsingu til fjölmiðla að tillagan sé lögð fram vegna þess að þeim þyki einsýnt að hvorki innan ríkisstjórnarinnar né stjórnarflokkanna ríki einhugur né raunverulegur vilji til almennra aðgerða í þágu heimilanna. Tíminn sé á þrotum og samfélagið geti ekki verið í biðstöðu á meðan stjórnvöld og fulltrúar peningaaflanna koma sér saman um að hve litlu leyti þau komist upp með að bæta almenningi þær búsifjar sem þessir sömu aðilar hafi átt stóran þátt í að skapa eða hefðu getað fyrirbyggt.
Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Talaði í 25 tíma og sló Bandaríkjamet Erlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Innlent Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Lést í umferðarslysi við Álfabakka „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Samfylkingin mælist með 27 prósenta fylgi Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Sjá meira
Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent
Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent