Erlent

Réttað í máli Assange í dag

Fulltrúar frá sænska ríkissaksóknaranum munu kom fyrir rétt í London í dag til að reyna að koma í veg fyrir að Julian Assange stofandi Wikileaks verði látinn laus úr haldi bresku lögreglunnar gegn tryggingu.

Þá hefur verið ákveðið að krafa Svía um framsal Assange til Svíþjóðar verði tekin fyrir þann 11. janúar n.k.

Fjöldi þekktra Breta hefur veitt Assange stuðning sinn opinberlega, þar á meðal eru mannréttindafrömuðirnir Jemima Khan og Bianca Jagger ásamt leikstjóranum Ken Loach.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×