Viðskipti innlent

Skil­ríki af­hent í Hag­kaupum í Skeifunni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Frá og með deginum í dag er hægt að sækja skilríki frá Þjóðskrá í Hagkaupum í Skeifunni.
Frá og með deginum í dag er hægt að sækja skilríki frá Þjóðskrá í Hagkaupum í Skeifunni.

Frá og með deginum í dag verður hægt að sækja vegabréf og nafnskírteini í verslun Hagkaupa í Skeifunni, allan sólahringinn, alla daga vikunnar.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Þjóðskrá og Hagkaup. 

Þar segir að gæta þurfi að mörgum þáttum þegar skilríki eru afhent og að starfsfólk Hagkaups hafi fengið viðeigandi þjálfun og að sömu öryggisstöðlum verði fylgt eftir sem áður.

„Umsækjandi sem óskar eftir því að sækja skilríkin í Hagkaup hefur til þess 7 daga frá því að skilríkið er tilbúið. Eftir þann tíma þarf viðkomandi að sækja skilríkið til Þjóðskrár, Borgartúni 21,“ segir í tilkynningunni.

„Við höfum lengi leitað lausna við að bjóða okkar viðskiptavinum upp á betri þjónustu við afhendingu skilríkja,“ er haft eftir Júlíu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Þjóðskrá. 

Þar hafi menn verið að leita leiða til að bæta þjónustuna, til að mynda með tilliti til staðsetningar, opnunartíma og bílastæða án gjaldtöku. Hagkaup hafi þannig komið til umræðu og stjórnendur fyrirtækisins tekið vel í hugmyndina.

Um er að ræða sex mánaða tilraunaverkefni.

„Við vorum himinlifandi að fá þessa fyrirspurn frá Þjóðskrá því við sem þjónustufyrirtæki erum stöðugt að leita nýrra leiða til að mæta betur þörfum viðskiptavina okkar. Við erum því stolt af því að vera valin í þetta samstarf af ríkisstofnun sem þorir að hugsa út fyrir boxið, eins og sagt er. Það verður án efa mikil breyting fyrir viðskiptavini Þjóðskrár að geta komið þegar þeim hentar til að sækja skilríki sín og við hlökkum til að taka á móti þeim öllum” segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×