Fótbolti

Níu mörk, tvö rauð og vítaklúður í bikarsigri Bayern á Stuttgart

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Franck Ribery fagnar marki sínu í kvöld.
Franck Ribery fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/AP
Bayern Munchen vann 6-3 útisigur á Stuttgart í ótrúlegum leik í þýska bikarnum í kvöld en þýsku bikarmeistararnir komust þar með áfram í átta liða úrslitin. Stuttgart endaði leikinn með aðeins níu menn inn á vellinum.

Andreas Ottl og Mario Gomez komu Bayern í 2-0 á fyrstu tíu mínútum leiksisn en Pavel Pogrebnyak náði að jafna leikinn með tveimur mörkum fyrir hálfleik. Miroslav Klose kom Bayern í 3-2 og Khalid Boulahrouz, varnarmaður Stuttgart var síðan rekinn útaf. Ekki minnkuðu vandræði Stuttgart þegar Christian Gentner klikkaði á víti en Matthieu Delpierre náði engu að síður að jafna leikinn.

Thomas Müller og Miroslav Klose komu Bayern í 5-3 áður en Delpierre varð annar leikmaður Stuttgart til þess að fá rauða spjaldið. Franck Ribery skoraði síðan sjötta mark Bayern á lokamínútu leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×