Innlent

Rannsaka „mannrán“ á Akureyri

MYND/Getty

Lögreglan á Akureyri er enn engu nær um einskonar mannrán sem framið var á bílastæði í bænum í gærmorgun.

Þá var japanskri gínu, í fullri líkamsstærð, stolið út bíl, sem stóð á planinu, en eigandi hans hafði burgðið sér inn í hús.

Þegar út kom var gínan á bak og burt, en hún var klædd í rauða úlpu, bláar buxur og með prjónahúfu á höfði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×