Innlent

Brotist inn um hábjartan dag

Þjófar brutust inn í íbúðarhús við fjölfarna götu í Keflavík um miðjan dag í gær og létu greipar sópa. Þeir stálu sjónvörpum, hljómflutningstækjum, myndavélum tölvum og fleiru.

Íbúarnir brugðu sér af bæ upp úr hádegi, en þegar þeir komu heim undir kvöld, kom þjófnaðurinn í ljós. Þetta er þriðja innbrot á heimili í Keflavík um hábjartan dag, á innan við viku tímabili.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×