Innlent

Jörundur Ragnarsson: Féll ofan í sprungu á rjúpnaveiðum

Jörundur Ragnarsson.
Jörundur Ragnarsson.

Leikarinn Jörundur Ragnarsson, sem gerði garðinn frægan sem mislukkaði læknastúdentinn í Vaktaþáttunum á Stöð tvö, lenti í lífsháska í gær þegar hann féll marga metra ofan í sprungu austan við Mývatn.

Hilmir Snær Guðnason.

Hann hafði verið á rjúpnaveiðum ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni leikara, sem þegar hringdi eftir aðstoð börgunarsveitar.

Þótt hún væri fljót á vettang, hafði Jörundi tekist að klífa upp úr sprungunni og slapp hann með nokkrar skrámur, en var að vonum illa brugðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×