Viðskipti innlent

Heiðar hótar málshöfðun gegn DV

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Heiðar Már Guðjónsson hótar DV málshöfðun.
Heiðar Már Guðjónsson hótar DV málshöfðun.
Heiðar Már Guðjónsson, fyrrverandi starfsmaður Novators, ætlar að stefna DV fyrir meiðyrði verði fréttir, þess efnis að hann hafi skipulagt árás á íslensku krónuna árið 2007 ásamt alþjóðlegum vogunarsjóðum, ekki dregnar til baka.

Í yfirlýsingu frá Heiðari sem lögmaður hans sendi fjölmiðlum nú síðdegis segir hann það vera mjög leitt að DV kjósi að rangtúlka tölvupóstsamskipti sín og halda fram röngum og meiðandi fullyrðingum þrátt fyrir að hann hafi ítrekað hrakið sömu fullyrðingar í samskiptum við blaðamann dagana áður en fréttin var birt. Tímasetning umfjöllunarinnar sé án efa ekki tilviljun þar sem undirritaður á í lokaviðræðum um möguleg kaup á Sjóvá ásamt hópi fjárfesta.

Heiðar Már segir að hvorki hann né Novator hafi tekið skortstöðu í íslensku krónunni, né haft hag af falli hennar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×