Fótbolti

HM-stjörnur Liverpool ekki í Evrópudeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segir að það sé afar ólíklegt að HM-stjörnur liðsins muni spila í 3. umferð Evrópudeildar UEFA.

Þar sem árangur Liverpool á síðustu leiktíð var enginn þarf liðið að byrja að spila í Evrópudeildinni í lok júlí sem er afar snemmt fyrir HM-leikmennina.

"Það er mjög líklegt að enginn af HM-leikmönnunum muni spila fyrstu Evrópudeildarleikina. Sérfræðingarnir segja mér að það sé heimskulegt að nota leikmenn sem eru þá nýbúnir að æfa og tóku þátt í HM," sagði Hodgson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×