Enski boltinn

Ensku úrvalsdeildarliðin greiddu umboðsmönnum 12 milljarða á einu ári

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Forráðamenn Chelsea greiddu um 1,6 milljarða kr. til umboðsmanna á einu ári.
Forráðamenn Chelsea greiddu um 1,6 milljarða kr. til umboðsmanna á einu ári. Nordic Photos/Getty Images

Þrátt fyrir að enska meistaraliðið Chelsea hafi aðeins keypt tvo leikmenn frá lokum septembermánaðar 2009 til 1. okt. 2010 greiddi félagið rúmlega 1,6 milljarða kr. til umboðsmanna á sama tímabili.

Blackpool eyddi minnstu fé í slíka þjónustu eða rétt um 8 milljónir kr., en Manchester City eyddi helmingi lægri upphæð í umboðsmenn á þessu tímabili í samanburði við árið þar á undan. Forráðamenn Blackpool eru eina félagið í úrvalsdeild sem notar það viðmið að leikmenn beri kostnaðinn við störf umboðsmanna.

Það fór lítið fyrir Manchester United á leikmannamarkaðinum þegar leikmannaglugginn var opnaður í janúar á þessu ári. Félagið greiddi hinsvegar um 420 milljónir kr. til umboðsmanna og þá eru tekjur Paul Stretford umboðsmanns Wayne Rooney ekki teknar með í reikninginn. Stretford fær sinn hlut af launum Rooney í hverri viku en Rooney fær um 47 milljónir kr. í laun á viku.

Kostnaður Chelsea vegna starfa umboðsmanna kemur verulega á óvart þar sem að Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri liðsins fékk aðeins þá Ramires frá Benfica og Yossi Benayoun frá Liverpool. Samtals greiddi Chelsea um 2,5 milljarða kr. fyrir þessa leikmenn. Ein skýring gæti verið á hárri greiðslu félagsins til umboðsmanna og tengist hún samningum þeirra Nicolas Anelka og Michael Essien. Þeir skrifuðu báðir undir saminga við félagið s.l. sumar og umboðsmenn þeirra hafa eflaust fengið háar greiðslur fyrir þeirra störf.





Roy Hodgson knattspyrnustjóri Liverpool fer hér yfir stöðuna af yfirvegun.

Liverpool borgaði einnig um 1,6 milljarða kr. til umboðsmanna á áðurnefndu tímabili sem hófst 1. Okt. 2009 og lauk í lok september á þessu ári. Félagið fékk Joe Cole til liðsins frá Chelsea án þess að greiða fyrir hann, en Cole gerði samning til fjögurra ára og fær hann um 17 milljónir kr. í laun á viku.

Liverpool þurfti einnig að greiða ýmsum aðilum vegna starfsloka knattspyrnustjórans Rafael Benitez. Roy Hodgson knattspyrnustjóri Liverpool fékk Raul Meireles, Christian Poulsen og Paul Konchesky til félagsins ásamt Cole. Við þessa upphæð bætist kostnaður vegna félagaskipta þeirra Milan Jovanovic og Maxi Rodriguez sem voru komnir til Liverpool á meðan Benitez var knattspyrnustjóri.

Karl Oyston stjórnarformaður Blackpool hefur sagt að knattspyrnan snúist um leikmenn en ekki umboðsmenn. „Ég er á þeirri skoðun að samningar við leikmenn snúist um að þeir fái tækifæri til þess að keppa við þá bestu í bestu deild í heimi. Umboðsmenn eru ekki alltaf með það sjónarmið að leiðarljósi," sagði Oyston.



Wayne Rooney fær ótrúlega fjárhæð í laun í hverri einustu viku hjá Manchester United.Vísir/getty

Greiðslur ensku úrvalsdeildarliðanna til umboðsmanna:

1. okt 2009 - 30. sept. 2010.

1. Chelsea 1,697 milljónir kr.

2. Liverpool 1.650 milljónir kr.

3. Manchester City 1.087 milljónir kr.

4. Tottenham 979 milljónir kr.

5. Sunderland 807 milljónir kr.

6. Arsenal 668 milljónir kr.

7. Everton 657 milljónir kr.

8. Bolton 648 milljónir kr.

9. West Ham 624 milljónir kr.

10. Wigan 449 milljónir kr.

11. Newcastle 441 milljónir kr.

12. Manchester United 422 milljónir kr.

13. Aston Villa 416 milljónir kr.

14. Stoke 401 milljónir kr.

15. Fulham 381 milljónir kr.

16. Blackburn 296 milljónir kr.

17. Birmingham 277 milljónir kr.

18. Wolves 235 milljónir kr.

19. WBA 112 milljónir kr.

20. Blackpool 8,2 milljónir kr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×