Erlent

Lindsay Lohan fær ekki að leika Lindu Lovelace

Leikkonan Lindsay Lohan hefur misst frá sér enn eitt hlutverkið vegna lífshátta sinna.

Til stóð að Lohan myndi leika klámdrottninguna Lindu Lovelace í myndinni Inferno sem er ævisaga Lovelace. Sú öðlaðist heimsfrægð fyrir leik sinn í myndinni Deep Throat á áttunda áratug síðustu aldar.

Leikstjóri Inferno segir að Lohan eigi ekki að taka brottreksturinn persónulega það sé bara ómögulegt að tryggja hana auk annarra atriða sem gera það að verkum að ekki er hægt að láta hana leika í myndinni.

Lohan dvelur nú í meðferð á Betty Ford meðferðarstofnuninni í Kaliforníu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×