Erlent

Litla Hafmeyjan komin heim

Óli Tynes skrifar
Aftur á sínum stað.
Aftur á sínum stað.

Litla Hafmeyjan er komin heim á steininn sinn í Kaupmannahöfn. Undanfarin misseri hefur hún verið í Sjanghæ þar sem hún skreytti danska skálann á heimssýningunni. Mjög voru skiptar skoðanir um hvort ætti að lána hana til Kína og gengu undirskriftarlistar á báða vegu. Það varð þó úr að sú litla lagði sjó undir sporð.

En nú er hún komin heim aftur og það var auðvitað tekið á móti henni með lúðrablæstri og ræðuhöldum. Hópur Kínverja var í fylgdarliðinu og þeir þökkuðu kærlega fyrir lánið. Og Danir fögnuðu henni innilega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×