Innlent

Þrír menn í haldi vegna líkamsárásar í Kópavogi

Þrír menn gista nú fangageymslur lögreglunnar eftir að hafa ráðist á fjórða manninn fyrir utan veitingastað í Hamraborg í Kópavogi um miðnætti. Sá var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en er ekki mikið meiddur.

Árásarmennirnir höfðu rétt áður skeytt skapi sínu á rúðu í fyrirtæki skammt frá árásarstaðnum, með því að mölbrjóta hana. Þeir verða yfirheyrðir í dag, þegar móðurinn verður runninn af þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×