Víkingar komnir upp í Pepsi-deildina og Njarðvík fallið úr 1. deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2010 16:15 Víkingar komust upp í dag með hjálp frá HK.
Víkingar tryggðu sér sæti í Pepsi-deild karla næsta sumar þegar næstsíðasta umferð 1. deildar karla fór fram í dag. Víkingar unnu 2-0 sigur á KA á Akureyri en það mun ekki ráðast fyrr en um næstu helgi hvort Leiknir eða Þór fylgja Víkingum upp. Viktor Örn Guðmundsson og Marteinn Briem tryggðu Víkingi 2-0 sigur fyrir norðan en Víkingar eru nú komnir upp í úrvalsdeildina eftir þriggja ára fjarveru. Það leit lengi vel út fyrir að Leiknir ætlaði að fylgja Víkingi upp en Hilmar Bjarnþórsson tryggði Fjarðabyggð 1-1 jafntefli á Eskifirði eftir að Kristján Páll Jónsson hafði komið Leikni í 1-0. HK gerði nánast út um vonir Þórsara með því að vinna þá 3-2 á Kópavogsvellinum. HK komst þrisvar yfir í leiknum en Leifur Andri Leifsson skoraði sigurmarkið í leiknum úr víti fimm mínútum fyrir leikslok. Leiknir er með þremur stigum meira en Þór en Akureyringar eru með betri markatölu. Bæði lið eru á heimavelli í lokaumferðini, Leiknir fær Fjölni í heimsókn en Þór tekur á móti Fjarðabyggð. Njarðvík féll eftir 3-0 tap fyrir Fjölni í Grafarvogi en Fjarðabyggð og Grótta eru jöfn að stigum í næstneðsta sæti fyrir lokaumferðina. Fjarðabyggð er með betri maratölu. Upplýsingar um markaskorara er fengnar af netsíðunni fótbolti.net.Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í dag:KA - Víkingur 0-2 0-1 Viktor Örn Guðmundsson,0-2 Marteinn BriemFjarðabyggð - Leiknir 1-1 0-1 Kristján Páll Jónsson, 1-1 Hilmar BjarnþórssonHK - Þór 3-2 1-0 Bjarki Már Sigvaldason (21.), 1-1 Kristján Steinn Magnússon (30.), 2-1 Atli Valsson (47.), 2-2 Kristján Steinn Magnússon (63.), 3-2 Leifur Andri Leifsson, víti (85.)ÍR - ÍA 0-3 0-1 Gary Martin (3.), 0-2 Gary Martin (45.), 3-0 Andri Júlíusson (55.)Grótta - Þróttur 2-3 0-1 Ingvi Sveinsson (40.), 0-2 Ingvar Ólason (43.), 0-3 Muamer Sadikovic (85.), 1-3 Elvar Freyr Arnþórsson, víti (90.), 2-3 Garðar Guðnason (90.+1)Fjölnir - Njarðvík 3-0 1-0 Guðmundur Karl Guðmundsson (13.), 2-0 Ágúst Þór Ágústsson (45.), 3-0 Guðmundur Karl Guðmundsson (76.)
Íslenski boltinn Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Frábært mark Trents, fyrsta mark Chiesa og nýtt Liverpool met hjá sextán ára strák Enski boltinn Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Freyr sagði já við Brann Fótbolti „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart umhverfi“ Fótbolti David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn Enski boltinn Fleiri fréttir Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Sjá meira