Torres með tvö og fær að mæta Atletico Madrid Elvar Geir Magnússon skrifar 8. apríl 2010 20:47 Fernando Torres í baráttunni í kvöld.
Liverpool er komið áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar en liðið vann seinni leikinn gegn Benfica 4-1 á Anfield í kvöld. Fernando Torres skoraði tvívegis fyrir Liverpool og mætir sínu fyrrum félagi, Atletico Madrid, í undanúrslitum keppninnar. Benfica vann fyrri leikinn í Portúgal 2-1 en Liverpool réði ferðinni í kvöld. Dirk Kuyt og Lucas Leiva hafa mátt þola mikla gagnrýni en þeir sáu um að skora mörkin tvö í fyrri hálfleik. Torres skoraði svo á 59. mínútu en gestirnir minnkuðu muninn tíu mínútum síðar. Þá var spenna hlaupin í leikinn enda ljóst að portúgalska liðið þyrfti aðeins eitt mark í viðbót til að komast áfram á útivallarmörkum. En Torres var ekki búinn að segja sitt síðasta orð. Hann gerði út um einvígið á 82. mínútu og úrslitin 4-1, samtals 5-3 sigur Liverpool. Atletico Madrid og Valencia gerðu á sama tíma markalaust jafntefli en þar sem fyrri leikurinn fór 2-2 kemst Atletico áfram á útivallarmörkum. Fulham fer einnig áfram eftir 1-0 útisigur gegn Wolfsburg þar sem Bobby Zamora skoraði eina markið strax á fyrstu mínútu leiksins. Fulham vann einvígið samtals 3-1 og mætir Hamburg í undanúrslitum. Hamburg vann 3-1 útisigur gegn Standard Liege, samtals 5-2 sigur í einvíginu.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Jóhann lenti óvænt í flugi með formanninum og fer ekki fet Enski boltinn Íþróttahjón opna apótek saman: „Þetta var búið að blunda í okkur í einhvern tíma“ Sport Búast við gullregni með sölu á Stefáni til Englands Fótbolti Tækling Toni Kroos eyðilagði Evrópumótið fyrir Pedri Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - Valur 0-2 | Ragnheiður heldur áfram að skora Íslenski boltinn Mótmælti sama brotinu tvisvar og var rekinn af velli Fótbolti „Líður eins og ég hafi svikið þjóð mína“ Fótbolti „Klikkaðir“ FH-ingar á grasi reyna að þyngja það með lóðum Íslenski boltinn Nýliði Minnesota Vikings lést í bílslysi Sport Donny van de Beek snýr við blaðinu og fer til Spánar Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - Valur 0-2 | Ragnheiður heldur áfram að skora Keflavík fagnaði sigri í botnslag Bestu deildarinnar Í beinni: Þróttur R. - Þór/KA | Tveir skakkir turnar sem vilja rétta sig við Donny van de Beek snýr við blaðinu og fer til Spánar Michael Olise mættur til læknisskoðunar hjá Bayern München Tækling Toni Kroos eyðilagði Evrópumótið fyrir Pedri Mótmælti sama brotinu tvisvar og var rekinn af velli Úrúgvæ sló Brasilíu út í vítaspyrnukeppni „Klikkaðir“ FH-ingar á grasi reyna að þyngja það með lóðum Jóhann lenti óvænt í flugi með formanninum og fer ekki fet Vistaskipti Kilman gætu breytt framtíð E-deildarliðs Maidenhead Búast við gullregni með sölu á Stefáni til Englands Sjáðu fernu og dans Viktors, Valsara í stuði og tæpt jöfnunarmark KR „Líður eins og ég hafi svikið þjóð mína“ Fyrsta mark Bryndísar skipti sköpum FHL jók forskotið og dýrmætur sigur Þróttar Hollendingar lentu undir en mæta Englandi „Ég hef aldrei skammast mín jafn mikið“ Viktor með fernu: „Eitthvað sem ég vissi alltaf að byggi í mér“ Fyrsta mark Eggerts eftir mínútu á vellinum Uppgjör og viðtöl: Valur-Fylkir 4-0 | Valsmenn ekki í vandræðum með botnliðið Uppgjörið: Vestri-Breiðablik 2-2 | Fyrsta stig Vestra á Ísafirði en eru Blikar að missa af lestinni? Uppgjörið og viðtöl: KR-Stjarnan 1-1 | Axel Óskar tryggði heimamönnum stig Uppgjörið: ÍA-HK 8-0 | HK-ingar hnepptir í þrældóm á Írskum dögum Uppgjörið: Tindastóll-Stjarnan 0-0 | Víti í súginn og markalaust í Skagafirði Öll vítin inn og England í undanúrslit Íslenskur markvörður orðaður við Frey og félaga Jóhann Berg áfram hjá Burnley Fyrirliðinn Morata ekki í banni í undanúrslitunum Lehmann elti kærastann til Ítalíu: „Draumur að geta verið hjá sama félagi“ Sjá meira
Uppgjörið: Vestri-Breiðablik 2-2 | Fyrsta stig Vestra á Ísafirði en eru Blikar að missa af lestinni?