Sport

Ragna komst auðveldlega i undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ragna Ingólfsdóttir tryggði sig í morgun inn í undanúrslitin í einliðaleik kvenna á Iceland International-mótinu sem fram fer í TBR-húsunum um helgina.

Ragna vann stöllu sína, Katrínu Atladóttur, frekar auðveldlega í tveimur lotum.

Aðrir keppendur í undanúrslitum eru frá Malasíu, Svíþjóð og Danmörku. Ragna mætir sænska keppendanum síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×