Fótbolti

Konchesky verður klár á fimmtudaginn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Bakvörðurinn Paul Konchesky verður væntanlega í liði Liverpool sem mætir Steaua Búkarest í Evrópudeild UEFA á fimmtudag.

Konchesky haltraði af velli í leiknum gegn Birmingham um helgina en það var ekkert alvarlegt að plaga hann.

"Hann hafði ekki leikið í tvær vikur og þegar hann fann að hann var að stífna upp ákvað ég að kippa honum af velli," sagði Roy Hodgson, stjóri Liverpoool.

"Mér fannst hann annars standa sig vel og á eftir að verða drjúgur fyrir okkur í framtíðinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×