Erlent

Demantadrottning krefst skaðabóta

Óli Tynes skrifar
Mugabe hjónin.
Mugabe hjónin.

Grace Mugabe eiginkona einvaldsins Roberts Mugabe í Zimbabwe hefur höfðað mál á hendur dagblaðinu Standard þar í landi. Blaðið sagði frá diplomatapósti á WikiLeaks þar sem því var haldið fram að frú Mugabe hafi auðgast ógurlega á demantsnámum landsins. Talið er að demantsnámurnar í austurhluta Zimbabwes séu þær auðugustu í heimi.

Í pósti frá bandaríska sendiráðinu í Harare var sendur póstur til utanríkisráðuneytisins þar sem gróði Grace var tíundaður. Fleiri voru nefndir svosem bankastjóri seðlabanka Zimbabwes, hershöfðingjar og aðrir háttsettir embættismenn.

Lögfræðingur Grace Mugabe segir þessar skelfilegu ásakanir á hendur „Móður þjóðarinnar" tilhæfulausar með öllu. Forsetafrúin krefst 15 milljóna dollara í skaðabætur. Það gerir um 1,7 milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×