Golf

Tiger á að tjá sig áður en hann byrjar að spila

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Kylfingurinn Geoff Ogilvy er á því að Tiger Woods geti ekki byrjað að spila golf á nýjan leik fyrr en hann sé búinn að svara öllum þeim gagnrýnisröddum sem eru uppi þessa dagana.

Tiger hefur verið í felum síðan hann viðurkenndi að hafa haldið framhjá konunni sinni. Eftir því sem best er vitað er hann í meðferð vegna kynlífsfíknar.

„Aðalástæðan fyrir því er að hann verður að bera virðingu fyrir öðrum kylfingum og minnka sirkusáhrifin áður en hann byrjar að spila. Ég er ekki viss um að mótshaldarar séu mjög spenntir fyrir því að hafa öll slúðurblöðin á staðnum," sagði Ogilvy.

„Það væri því afar gott ef hann kemur öllum viðtölum frá. Auðvitað verður einhver geðveiki í gangi en mesti hasarinn verður yfirstaðinn ef hann gerir þetta svona."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×