Innlent

Töluvert um átök og pústra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Mynd/ Daníel.
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Mynd/ Daníel.
Töluvert var um átök og pústra í miðborg Reykjavíkur í nótt. Nokkur fjöldi fólks var kominn saman í miðbænum enda er jólaprófum að mestu lokið í skólum og fylgir því yfirleitt nokkuð skemmtanahald.

Engin alvarleg meiðsl hlustust þó af átökunum og varðstjóri hjá lögreglunni sem fréttastofa talaði við telur að ekki verði kært vegna þeirra.

Tíu ökumenn voru stöðvaðir í nótt vegna gruns um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu og þykir sú tala í hærri lagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×