Ekki heimilt að leggjast gegn leyfi til Goldfinger 18. desember 2010 08:00 Þótt nektardans hafi áður verið stundaður á Goldfinger getur bærinn ekki neitað staðnum um rekstrarleyfi, segja lögmenn.
Bæjaryfirvöldum í Kópavogi er ekki stætt á því að leggjast gegn því að nýtt hlutafélag Ásgeirs Davíðssonar fái leyfi til að reka skemmtistaðinn Goldfinger. Þetta kemur fram í álitsgerð sem Mörkin lögmannsstofa vann fyrir Kópavogsbæ. Ásgeir stofnaði Sportakademíuna ehf. í júlí og sækir félagið um heimild til rekstrar á Goldfinger. Mörkin lögmannsstofa segir að þótt Goldfinger hafi boðið upp á nektardans á undanförnum árum hafi lögum síðan verið breytt. Nú sé hvorki heimilt að bjóða upp á nektarsýningar né gera með öðrum hætti út á nekt starfsmanna eða annarra sem eru á staðnum. „Bæjarstjórn Kópavogs verður því að ganga út frá þeirri forsendu að nektardans verði ekki stundaður á Goldfinger þar sem um ólöglega starfsemi væri að ræða. Sú staðreynd að svo hafi áður verið getur ekki orðið til þess að réttlæta það að leggjast gegn umræddri umsókn fyrir það að hún sé andstæð sameiginlegum velferðarmálum íbúa bæjarins,“ segir í lögfræðiálitinu, þar sem enn fremur er bent á að atvinnufrelsi sé varið af stjórnarskránni: „Takmarkanir á því verða að byggjast á lögmætum og málefnalegum ástæðum og heimildir til þess verður að túlka þröngt. Upplýsingar sem við höfum um málið bera ekki með sér að sýnt hafi verið fram á slík heimild sé fyrir hendi.“ Eftir að álitsgerðin var lögð fram ákvað bæjarráð að kalla saman til fundar lögbundna umsagnaraðila; fulltrúa sveitarstjórnar, heilbrigðiseftirlits, slökkviliðs, vinnueftirlits, byggingarfulltrúa og lögreglu og fá þá til að vinna saman að umsögn um málið. Sýslumaður getur ekki gefið út rekstrarleyfi ef einhver umsagnaraðili leggst gegn því á málefnalegum forsendum. Í samþykktum Sportakademíunnar ehf. kemur fram að tilgangur félagsins sé veitingarekstur, verslun og danssýningar.- gar
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Viðskipti innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Innlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Innlent Fleiri fréttir Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Alma og Guðmundur Ari leiða í Kraganum Ragnar Þór tekur sæti Tomma og verður oddviti Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt „Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben Ekið á tvo á gatnamótum við Kringlumýrarbraut Vilja skýrari svör um afgreiðslu fjárlaga og þingslit Stunguárásin í Grafarvogi: Grunar ekki að málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi Ekkert drama á bak við frestun fundarins Faðirinn áfram í gæsluvarðhaldi Bæjarstjóri dembir sér í landsmálin Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Kosningapallborð: Kanónur kveðja Brynjar fái þriðja sætið: „Þeir vita meira en ég“ Her af iðnaðarmönnum við framkvæmdir á Stuðlum Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sjá meira