Gunnar kynnir sína eigin fjárhagsáætlun 18. desember 2010 09:50 Gunnar Birgisson ætlar að kynna fjárhagsáætlun sína. Mynd/ Anton.
Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, segir að fjárhagsáætlun meirihlutans sé árás á ungar barnafjölskyldur og íþróttafélögin og hann standi ekki í slíku. Hann vill ganga skemur í skattahækkunum og hefur lagt fram sína eigin fjárhagsáætlun. Gunnar kynnti áætlun sína fyrir flokksmönnum í morgun og mun leggja hana fyrir í bæjarstjórn á þriðjudag. Loka þarf um 800 milljóna króna fjárhagsgati á næsta ári í Kóapvogi. Gunnar segir að hugmyndir annarra í bæjarstjórn falli ekki að hugmyndun hans né sjálfstæðisflokksins. „Í hugmyndum þeirra er verið að hækka skatta og þjónustugjöld. Ég geri það hóflega en sker niður meira á móti. Þessi áætlun þessara tíumenninga er árás á ungar barnafjölskyldur í Kópavogi og íþróttafélögin og ég stend ekki að slíku,“ segir Gunnar. Gunnar vill skera niður meira í aðkeyptri vinnu og innkaupum bæjarins. Þá vill hann fækka starfsfólki, með því að ráða ekki í stöður sem losna. Gunnar segir að þeir sem hlynntir séu sjálfstæðisstefnunni hljóti að hugsa sig um þegar þeir beri saman tillögur hans og meirihlutans. Gunnar segir að Ármann Ólafsson, oddviti flokksins í Kópavogi, hafi ekki viljað taka þátt í áætlunargerðinni með honum. „Ég hef boðið upp á það hvað eftir annað í flokknum að við stöndum saman að eigin áætlun, þar sem áherslur okkar flokks í gegnum tíðina væru í heiðri hafðar en ekki þessar línur sem virðast vera kóperaðar frá Austurvelli að hækka skatta og þjónustugjöld og skera lítið niður á móti, það er ekki á bætandi álögur á barnafólk í landinu,“ segir Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Fleiri fréttir Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Sjá meira