Fargjöld hækkuð á unga eldri borgara 18. desember 2010 06:00 Aldursviðmið Strætó vegna afsláttar til eldri borgara verða hækkuð upp í 70 ár vegna niðurskurðar velferðarráðs Reykjavíkur. Öll fargjöld munu hækka. Fréttablaðið/Vilhelm
Strætisvagnafarþegar á aldrinum 67 til 69 ára munu ekki njóta afsláttar eldri borgara í nýrri gjaldskrá Strætó bs. sem kynnt var í gær og tekur gildi um áramót. Afsláttur eldri borgara er nú miðaður við 70 ár í stað 67 áður, en það hefur í för með sér að verð á stökum farmiða fyrir þennan ákveðna aldurshóp hækkar úr 80 krónum upp í 350. Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík, er að vonum ekki sáttur við þær hugmyndir. „Mér finnst alveg út í hött að breyta prinsippatriði um hvenær fólk öðlast þessi réttindi. Flestir fara á ellilífeyri 67 ára, sem þýðir yfirleitt töluverða skerðingu á tekjum. Þess vegna eru þessir afslættir komnir til.“ Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. sagði í samtali við Fréttablaðið að sveitarfélögin sem eiga félagið hafi tekið þessa ákvörðun með því að hætta að niðurgreiða fargjöld eldri borgara. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að ákveðið hafi verið að hækka viðmiðunaraldur í hagræðingarskyni. „Þegar við vorum að skoða möguleika til sparnaðar ákváðum við að óska eftir því að aldursviðmið yrðu hækkuð, því að það er ekki hægt að tala um fólk á aldrinum 67 til 70 ára sem aldrað fólk. Þannig þótti okkur upplagt að greiða niður strætisvagnafargjöld frá 70 ára aldri.“ Björk segir ekki um lögbundna þjónustu að ræða og ekki sé vitað hversu miklir fjármunir sparist við þessa ráðstöfun. „Við rennum alveg blint í sjóinn, en við vonumst til að geta sparað fimm milljónir á ári með þessu.“ Hún bætir því við að langt sé síðan þessi aldursviðmið voru sett og þó að þau eigi við á einum stað eigi þau ekki við alls staðar. Þórhallur Gunnlaugsson, fulltrúi Vinstri grænna í velferðarráði, mótmælti niðurskurðinum á sínum tíma og segir að margt sé athugavert við meðferð málsins. „Þetta er rætt sem hluti af sparnaði eða hagræðingu, en það kemur ekki einu sinni fram tillaga um þetta mál. Það er margt inni í þessari fjárhagsáætlun sem fólk veit ekki af. Ég á von á því að þegar fólk áttar sig á því hvað komi ofan á aðrar skerðingar muni heyrast hljóð úr horni.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Fréttir Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent Fleiri fréttir Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Sjá meira