Hófu formlegan undirbúning að olíuleit við Jan Mayen 18. desember 2010 20:07
Norsk stjórnvöld hófu í vikunni formlegan undirbúning að olíuleit við Jan Mayen með þeim rökum að nauðsynlegt sé fyrir norskan olíuiðnað að finna nýjar auðlindir. Norðmenn gera þó ekki ráð fyrir að olíuvinnsla hefjist þar fyrr en eftir tíu til fimmtán ár. Opnun Jan Mayen-svæðisins er í stjórnmálaumræðunni í Noregi sögð vera skálkaskjól í deilum innan ríkisstjórnarflokkanna um hvort leyfa eigi olíuleit á nýjum svæðum við Norður-Noreg, við Lófóten og í Vesturál. Ríkisstjórnin fyldi málinu úr hlaði með útgáfu skýrslu um Jan Mayen en þar er því lýst að spár geri ráð fyrir að verulega dragi úr olíuvinnslu Noregs á næstu 20 árum. Til að koma í veg fyrir þann samdrátt sé nauðynlegt að halda áfram að leita að olíu og gasi á þeim svæðum sem vænlegust þykja. Vonir séu bundnar við að enn eigi eftir að finnast stórar auðlindir í norskri lögsögu og því sé þetta nýja svæði opnað til leitar. Svæðið er suður og vestur af Jan Mayen, og nær að lögsögumörkum Íslands. Það er í beinu framhaldi af Drekasvæði Íslendinga, og svo heppilega vill til fyrir Íslendinga að í gildi er samningur milli þjóðanna um gagnkvæman 25 prósenta nýtingarrétt á hluta svæðisins en réttur Íslands nær þó yfir mun stærra svæði Noregsmegin. Áætlun Norðmanna gerir ráð fyrir að fyrst verði farið út í nákvæmari hljóðbylgjurannsóknir, botnlagsrannsóknir og grunnar boranir. Bent er á að reynslan sýni að tíu til fimmtán ár líði þar til olíuvinnsla hefjist og því sé ekki við því að búast að framleiðsla hejfist á Jan Mayen-svæðinu fyrr en á árunum 2020 til 2030.
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Innlent Fleiri fréttir Skilríki afhent í Hagkaup í Skeifunni Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Sjá meira