Birtir ekki frekari upplýsingar um styrki 18. desember 2010 08:30 Forysta Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur greint frá styrkjum til flokksskrifstofunnar í Valhöll en ekki frá styrkjum til annarra aðildarfélaga. Nú er ljóst að úr því verður ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki birta frekari upplýsingar um styrkveitendur sína á árunum 2002 til 2006 en nú þegar hefur verið gert. Ríkisendurskoðun birti í janúar yfirlit frá flokknum um rúmlega 180 ónafngreinda styrkveitendur flokksins, sem veittu styrki fyrir rúmar 330 milljónir á þessum árum. Stuttu síðar ræddi Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri flokksins, við Fréttablaðið og kom þar fram að enn væru ótaldir styrkir til aðildarfélaga flokksins víða um landið. Þau voru þá um 140 talsins. Í viðtalinu sagði að fara ætti í talsverða vinnu við að nafngreina styrkveitendurna og að greina frá styrkjum til aðildarfélaganna. Á fimmta tug styrkveitenda Valhallar var svo nafngreindur um vorið á heimasíðu flokksins. Samkvæmt nýjum upplýsingum frá flokknum verða tölur frá aðildarfélögunum ekki birtar og fullreynt þykir að fá leyfi hinna styrkveitendanna (um 130 talsins) til að birta nöfn þeirra. „Þetta eru þeir sem féllust á að vera nafngreindir. Við höfum náttúrlega ekki náð í alla, en flesta," segir Sigríður Þorsteinsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn þáði ekki boð blaðsins um að útskýra hví styrkir til aðildarfélaga væru ekki birtir, en þess má geta að flokknum ber ekki lagaleg skylda til að birta neitt af þessum upplýsingum.- kóþ
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Fleiri fréttir Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Sjá meira