Konurnar ætla að dansa vegna nýja vegarins 4. nóvember 2010 11:36 Leiðin til Raufarhafnar frá Reykjavík styttist umtalsvert með tilkomu nýja vegarins.
Íbúar á norðausturhorni landsins efna til allsherjar héraðshátíðar á sex stöðum um helgina í tilefni þess að nýr vegur yfir Melrakkasléttu verður formlega opnaður, en með honum styttast leiðir til bæði Raufarhafnar og Þórshafnar, auk þess sem samfellt malbik verður komið þangað alla leið úr Reykjavík.Ögmundur Jónasson samgönguráðherra mun ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra opna formlega Hófaskarðsleið og Raufarhafnarveg klukkan ellefu á laugardagsmorgun með því að klippa á borða við áningarstaðinn í Hófaskarði. Síðan verður öllum íbúum boðið til kaffisamsætis í Félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn.Fyrir íbúa norðausturhornsins markar opnun nýja vegarins það mikil tímamót í samgöngumálum að þeir ætla að efna til allsherjarhátíðar um helgina, allt frá föstudegi og fram á sunnudag, undir heitinu "Núna fer ég norður". Uppákomur af ýmsu tagi verða í byggðakjörnum og sveitabæjum, allt vestur frá Ásbyrgi og austur á Langanes, en mest þó á Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn.Af einstökum viðburðum má nefna að sérstök konukvöld verða á Þórshöfn og Raufarhöfn með dansiballi fram á rauða nótt, markaðsdagur verður í íþróttahúsinu á Þórshöfn á laugardag og knattspyrnumót ungmenna á sunnudag, á Ytra-Lóni á Langanesi fer fram smalahundakeppni, píanótónleikar verða í Þórshafnarkirkju og léttmessa í Raufarhafnarkirkju.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira