Bretar hafa enn ekki orðið við beiðni Íslendinga 13. maí 2010 19:18 MYND/Anton
Breska lögreglan hefur enn ekki orðið við beiðni sérstaks saksóknara um að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, verði handtekinn og framseldur til Íslands. Dómsmálaráðherra segir að framsalssamningur milli Íslands og Bretlands sé í fullu gildi. Sigurður hefur ekki svarað kalli sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á meintum lögbrotum hans. Sigurður sem búsettur er í London er eftirlýstur á vef Interpol fyrir fjársvik og hefur sérstakur saksóknari óskað eftir því hann verði framseldur til Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá bresku lögreglunni er ekki búið að handtaka Sigurð en handtökubeiðni sértsaks saksóknara er komin með málsnúmer hjá Scotland Yard. Ferlið gæti, eftir því sem fréttastofa kemst næst, tekið nokkra daga til viðbótar. Íslendingar eigi enn eftir að fullgilda Evrópusamning um handtöku og framsal grunaðra og dæmdra manna. Dómsmálaráðherra segir að sú staðreynd eigi ekki að hafa áhrif á framsalsbeiðnir. „Almennt talað erum við aðilar að evrópskum framsalssamningi, Bretar líka, en ekki samningi um evrópsku handtökuskipunina. Þannig að það er framsalssamningur í gildi á milli þessara landa," segir Ragna Árnadóttir. Neiti bretar hins vegar að verða við beiðni sérsaks saksóknara þurfi þeir eftir sem áður veita íslendingum réttaraðstoð sem felur það í sér að Sigurður yrði yfirheyrður í Bretlandi vegna rannsóknar sérstaks saksóknara.
Mest lesið Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Innlent Írar undirbúa sig fyrir mesta óveður í manna minnum Erlent Lögbann sett á tilskipun Trumps Erlent „Við erum algjörlega komin á endastöð“ Innlent Mikið reiðarslag fyrir réttindi bandarískra borgara Erlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn Innlent Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Innlent Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Innlent Fleiri fréttir Hús varð fyrir tjóni vegna eldingar Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn „Við erum algjörlega komin á endastöð“ „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt „Lausa skrúfan“ seld á Akureyri Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Ærandi þögn og klukkan tifar Halla vill leiða VR áfram Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Leyfið heyrir sögunni til Sjá meira