Innlent

Skora á Gylfa að segja af sér

Margrét Tryggvadóttir, Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir, þingmenn Hreyfingarinnar
Margrét Tryggvadóttir, Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir, þingmenn Hreyfingarinnar
Þingmenn Hreyfingarinnar skora á Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, að segja af sér.

Í tilkynningu sem þau hafa sent fjölmiðlum segir að Gylfi hafi ítrekað „afvegaleitt umræðuna um gengistryggð lán, leynt þing og þjóð mikilvægum gögnum og farið á svig við sannleikann.

„Muni ráðherrann ekki segja af sér sjáum við ekki annan kost í stöðunni en að bera fram vantrauststillögu á hendur ráðherranum um leið og þing kemur saman í september," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×