Viðskipti erlent

Áhugi á að kaupa eina af stærri breskum eignum Kaupþings

Nokkrir fjárfestar hafa lýst áhuga á því að kaupa, Bay Restaurant Group (Bay), eina af stærri eignum Kaupþings í Bretlandi. Bay var áður í eigu auðmannsins Robert Tchenguiz fyrrum stjórnarmanns í Exista. Kauipþing leysti til sín þessa eign í fyrra.

Fjallað er um málið á Timesonline en þar kemur fram að Bay er eignarhaldsfélag veitingahúsakeðjanna La Tasca og Ha Ha Bar and Grill. Times hefur heimildir fyrir því að fjárfestar hafi áhuga á að kaupa Bay en jafnframt fylgir sögunni að Kaupþingi liggi ekkert á að selja.

Bay, og systurfélag þess Town & City, tilheyrðu eitt sinn Laurel Pub Company félagi Tchenguiz. Í mars á síðasta ári innkallaði Kaupþing hundruðir milljóna punda af lánum Tchenguiz og eignaðist þar með bæði félögin. Eftir að hafa breytt skuldum í hlutafé komust bæði félögin að fullu undir stjórn Kaupþings.

Talið er að fyrir Bay geti fengist um 200 milljónir punda, eða rúmlega 40 milljarðar kr. Undir nafni Tasca eru nú reknir 73 veitingastaðir og 24 undir Ha Ha Bar and Grill.

Sem fyrr segir er liggur Kaupþingi ekkert á að selja þessar eignir og samkvæmt Times mun það ekki verða gert nema fullt verð fáist fyrir þær.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×