„Fyrirtækin losna úr klafa samningaþófs og skuldavanda“ 17. desember 2010 13:12 Árni Páll Árnason vonast til þess að fyrir næsta sumar verði öll lífvænleg fyrirtæki í skuldavandai komin með tilboð um fjárhagslega endurskipulagningu. Mynd: GVA
Viðskiptaráðherra vonast til að endurskipulagningu lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði lokið fyrir næsta sumar, en framkvæmdastjóri úr bankakerfinu segir nýtt samkomulag um úrvinnslu skulda þeirra geta skipt miklu fyrir fyrirtækin. Samkomulag um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja var kynnt stjórnendum fyrirtækja á fundi á Grand Hótel í morgun, en samkomulagið var undirritað á miðvikudag. Árni Páll Árnason, viðskiptaráðherra, segir nýju leiðina, sem gengur undir heitinu Beina Brautin, gera ráð fyrir því að fyrirtækin verði gerð rekstrarhæf. En af hverju beinist kastljósið að litlum og meðalstórum fyrirtækjum nú tveimur árum eftir hrun? "Það hefur verið alveg ljóst að gangurinn hefur ekki verið nógu góður í litlu og meðalstóru fyrirtækjunum. Kansnki hefur orkan verið að fara í of ríkum mæli í stóru fyrirtækin þar sem, eðli málsins samkvæmt, eru önnur og flóknari úrlausnarefni." "Í þessum tilvikum erum við að tala um fyrirtæki þar sem stærðirnar liggja hreinar og beinar fyrir, og það er mjög mikilvægt að þau komist hratt í rekstrarhæft ástand. Við eigum mikið undir því að þau geti farið að bæta við sig verkefnum og stækka. Annars eru allar forsendur hagvaxtar í óvissu." Árni vonast til þess að fyrir næsta sumar verði öll fyrirtækin komin með tilboð um fjárhagslega endurskipulagningu. "Strax á miðju næsta ári eiga þessi fyrirtæki því að hafa skýra sýn á það hvað þau geta gert og hvað þau geta leyft sér. Ég vonast til þess að þau fari þá að bæta við sig fólki og auka fjárfestingu, sérstaklega í útflutningi. Við þurfum að nýta þau tækifæri sem við höfum núna, þegar gengið er lágt og aðstæður heppilegar fyrir aukningu í útflutningi. Við erum að reyna að ýta atvinnulífinu af stað í þessu brýnu verkefni." Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, flutti framsögu á fundinum. Þar hefur höfuðáherslan verið lögð á stærri fyrirtæki, en bankinn mun nú beina athygli sinni að fyrirtækjum með skuldir yfir 10 milljónir. Hún segir lausnirnar breyta miklu fyrir fyrirtækin. "Fyrirtækin losna úr klafa samningaþófs og skuldavanda. Stjórnendur geta einbeitt sér að rekstrinum, bara með því að laga efnahagsreikning sinn og fá óvissunni eytt, og gert það sem þeir gera best; að reka fyrirtækið." "Þessi lausn hefur virkað. Þetta er sett upp í ákveðið form, sem er einfalt og tryggir jafnræði skuldara og skilvirkni í bönkunum."
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Innlent Fleiri fréttir Skilríki afhent í Hagkaup í Skeifunni Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Sjá meira