Innlent

Lilja áfram í þingflokki VG

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG.

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segist ætla að sitja áfram í þingflokki VG. Hún vill að formaður flokksins geri grein fyrir ummælum sínum um þremenninganna sem sátu hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í gær. Frumvarpið var samþykkt með aðeins eins atkvæðis meirihluta. Auk Lilju sátu þeir Atli Gíslason og Ásmundur Daði Einarsson hjá þegar greidd voru atkvæði um fjárlagafrumvarpið.

„Við vorum ekki að greiða atkvæði um ríkisstjórnina og mér finnst mjög miður þegar verið er að reyna að draga athyglina frá okkar málefnalegu gagnrýni á fjárlagafrumvarpið með því að halda því fram að við höfum greitt atkvæði gegn ríkisstjórninni eða lýst yfir vantrausti," sagði Lilja í Kasljósi í kvöld. „Við styðjum ríkisstjórnina. Sérstaklega til góðra verka.“

Lilja sagði ekki hafi verið hlustað þremenningana í fjárlagavinnunni. „Okkar tillögur fengu ekki efnislega skoðun."

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði í gær að þremenningunum væri tæplega sætt í þingflokknum. „Nei, tæplega eins og ekkert hafi í skorist því þetta er nokkuð erfið uppákoma,“ sagði flokksformaðurinn.

Lilja sagðist eiga mikla samleið með stefnumálum Vinstri grænna. „Ég sé ekki neina ástæðu til að fara út úr þingflokknum." Hún sagði Steingrím þurfa útskýra hvað hann hafi meint með ummælunum í gær. „Hann þarf að útskýra þau orð betur.“

 

 

 


Tengdar fréttir

Þráinn Bertelsson í oddaaðstöðu

Þráinn Bertelsson, nýjasti þingmaður Vinstri grænna, gæti verið með líf ríkisstjórnarinnar í hendi sér eftir að þrír þingmenn sögðu skilið við hana í atkvæðagreiðslu um fjárlögin í gær. Tveir hinna umdeildu þremenninga í órólegu deildinni segjast þó ætla að verja hana falli.

Þrír þingmenn VG styðja ekki fjárlagafrumvarpið

Þrír þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs munu ekki styðja fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Atkvæðagreiðsla um frumvarpið hófst laust eftir klukkan ellefu í morgun. Þingmennirnir sem telja sig ekki geta stutt frumvarpið eru Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason.

Mjög eindregið vantraust

Hjáseta þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í atkvæðagreiðslu um fjárlög er í raun yfirlýsing um að þeir styðji ekki lengur ríkisstjórnina. Þetta er mat Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við HÍ.

Þríeykinu verður ekki vísað úr þingflokknum

„Ég mun ekki mæla með því að neinum verði vísað úr þingflokknum enda er það ekki í okkar lögum að gera það. Það eru allir velkomnir í okkar þingflokk sem vilja vinna þar og vinna með okkur. Við fögnum öllum stuðningsmönnum ríkisstjórnar sem eru það í reynd,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, í Kastljósi í kvöld.

„Hverjum er sætt í þingflokknum?“

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir engan mun á stefnu Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnarinnar hvað niðurskurð hjá hinu opinbera varðar. „Spurning hverjum er sætt í þingflokknum. Þeim sem fylgja eftir vilja félaganna og ályktunum flokksins eða þeim sem afvegaleiðast innan múra valdsins,“ segir Lilja á Facebook-síðu sinni í kvöld. Þar vísar hún til ummæla Steingríms J. Sigfússonar í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þar sagði Steingrímur að Lilju, Atla Gíslasyni og Ásmundi Daða Einarssyni væri tæplega sætt í þingflokknum. „Nei, tæplega eins og ekkert hafi í skorist því þetta er nokkuð erfið uppákoma.“

Enn dregið úr niðurskurði

Útgjöld ríkissjóðs til velferðarmála aukast um rúmlega einn milljarð króna frá því sem áður stóð til. Meirihluti fjárlaganefndar gekk í gærkvöldi frá breytingatillögum við frumvarpið en lokaumræða þess er á dagskrá þingsins í dag. Meðal þess sem breytist er að 350 milljónum króna verður varið til verðbóta á grunn ellilífeyris- og örorkubóta.

Framtíð stjórnarsamstarfsins í óvissu

Framtíð stjórnarsamstarfsins er í óvissu eftir að þrír þingmenn Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins í dag, sem var samþykkt með minnstum mögulegum meirihluta á Alþingi. Fjármálaráðherra segir afstöðu þingmannanna vonbrigði og forsætisráðherra segir ekki ljóst hvort hægt sé að treysta á stuðning þremenninganna í framtíðinni.

Meira skorið niður í velferðarmálum en í stjórnsýslunni

Á sama tíma og skorið er verulega niður í mörgum mikilvægum málaflokkum þá er lítið skorið niður í æðstu stjórnsýslu ríkisins, segja þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason í yfirlýsingu sem þau samþykktu fyrir atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag.

Steingrímur vonsvikinn með flokksfélagana

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG, segist hafa orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með að þrír þingmenn flokksins skuli hafi ákveðið að sitja hjá í afgreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. Fjárlögin voru samþykkt með 32 atkvæðum en 31 þingmaður sat hjá, þar á meðal þingmenn VG, þau Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason.

Lítur svo á að fækkað hafi í stjórnarliðinu

„Ég met stöðu ríkisstjórnarinnar svo að hún hafi stuðning 32 þingmanna af 63 á Alþingi og þar af leiðandi eins manns meirihluta.“ Þetta sagði Þórunn Sveinbjarnar­dóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, í samtali við Fréttablaðið eftir atkvæðagreiðslu um fjárlög í gær. Þrír þingmenn VG; Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Fjárlagafrumvarpið samþykkt

Þrjátíu og tveir þingmenn greiddu fjárlagafrumvarpinu atkvæði sitt, en atkvæðagreiðslu lauk laust eftir klukkan eitt í dag. Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, hafði fyrirfram gert grein fyrir því að hún og samflokksmenn hennar, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, myndu ekki greiða frumvarpinu atkvæði sitt. 31 þingmaður sat hjá við atkvæðagreiðsluna en enginn greiddi atkvæði gegn frumvarpinu.

Lokaumræða um fjárlögin hafin: Spennandi atkvæðagreiðsla

Fjárlög næsta árs komu til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi skömmu fyrir hádegi. Við afgreiðslu þeirra kemur í ljós hvort frumvarpið nýtur stuðnings allra þingmanna stjórnarflokkanna en Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar, sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlögin eftir aðra umræðu.

Ekkert fararsnið á Atla

„Ég þykist vita að flokkurinn standi nógu lýðræðislega sterkum fótum til að þola þessa umræðu,“ segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna. Hann segir ekkert fararsnið á sér. „Nei, ég er rótgróinn í flokknum eins og eikartré. Ég er að vona að flokkurinn fari ekki of langt frá mér og stefnumiðum sínum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×