Innlent

Geir segir framkomu forseta landsdóms gegn sér vítaverða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Geir segir hegðun Alþingis gegn sér vera vítaverða. Mynd/ GVA.
Geir segir hegðun Alþingis gegn sér vera vítaverða. Mynd/ GVA.
Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segir vinnubrögð varðandi málsókn Alþingis gegn sér vera vítaverð.

Ástæðan er lagafrumvarp sem dómsmálaráðherra lagði fram í síðustu viku um breytingar á landsdómi eftir tillögum sem hann fékk frá forseta dómsins. „Forseti dómsins hefur með öðrum orðum undirbúið breytingar á lagaumgjörðinni um það mál sem Alþingi hefur höfðað gegn mér eftir að ákvörðun um málshöfðun lá fyrir. Síðan hefur forsetinn sent þær tillögur til ráðherra sem sjálfur greiddi atkvæði með málshöfðun gegn mér og hefur, eins og hans pólitísku samherjar, mikla pólitíska hagsmuni af því að ég verði sakfelldur," segir Geir í erindi sem hann sendir fjölmiðlum.

Geir segir þessi vinnubrögð vera með ólíkindum. „Ég tel þessi vinnubrögð vítaverð og skiptir í því sambandi ekki máli þótt sum þau atriði sem lagt er til að verði breytt geti talist minni háttar. Alþingi var vel kunnugt um að einhverjir annmarkar væru á lagaumgjörðinni um landsdóm þegar ákveðið var að höfða málið, en lögin voru þó talin nothæf. Breytingar á lögunum nú, eftir að ákvörðun um ákæru hefur verið tekin, fá ekki staðist, a.m.k. ekki án þess að leitað sé samþykkis allra málsaðila. Raunar væri fróðlegt að vita hvort leitað var munnlegrar eða skriflegrar umsagnar saksóknara Alþingis á téðum tillögum um breytingar á lögunum," segir Geir.

Þá ítrekar Geir jafnframt gagnrýni sína á að honum skuli ekki hafa verið skipaður verjandi. „Í lögunum um landsdóm segir í 15. grein að forseti landsdóms skuldi skipa hinum ákærða verjanda svo fljótt sem verða má," segir Geir í erindi sínu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×