Golf

Aðeins átján konur í Kiðjaberginu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Fréttablaðið/Arnþór
Alls taka 142 kylfingar þátt í Íslandsmótinu í höggleik en athygli vekur að aðeins 18 konur eru skráðar til leiks að þessu sinni.

Flestir bestu kvenkylfingar landsins munu þó mæta til leiks og spá flestir því að Skagamærin Valdís Þóra Jónsdóttir muni verja titilinn sem hún vann í Grafarholti í fyrra.

Valdís Þóra hefur leikið einkar vel á Eimskipsmótaröðinni í sumar og spilaði síðan frábæran hring í Kiðjaberginu á mánudag er Pro/Am-mót GSÍ fór fram.

Hún kom þá í hús á 71 höggi og sló öllum karlkylfingunum við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×