Innlent

Yfir 30 starfsmenn ráðnir án auglýsinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um starfsmannamál í ráðuneytunum í dag. Mynd/ GVA.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um starfsmannamál í ráðuneytunum í dag. Mynd/ GVA.
Yfir 30 manns hafa verið ráðnir til starfa í ráðuneytum frá nóvember í fyrra án þess að störfin séu auglýst. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Fram kemur í svari ráðherra að ráðið hafi verið í laus störf samkvæmt settum reglum, en þær gera ráð fyrir að heimilt sé að ráða í störf án auglýsinga ef ráðið er í tvo mánuði eða skemur, eða ef um tímabundið starf vegna orlofs eða leyfa er að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×