Innlent

Icesave-málið verður ekki klárað fyrir jól

Jóhanna
Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
„Ég fagna því mjög að þessi niðurstaða hafi náðst og ekki síst að það hafi náðst sátt í samninganefndinni, sem var meðal annars skipuð fulltrúa frá stjórnar­andstöðunni,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um Icesave-samninginn sem nú liggur á borðinu. „Þetta er gríðarlegur áfangi í endurreisninni.“

Jóhanna segir að forystumenn flokkanna séu þegar byrjaðir að ræða um framhald málsins og hvernig farið verður með það í þinginu. Hún vonist til þess að allir flokkar geti staðið að því saman.

„Ég vona að það skýrist fljótlega í næstu viku hvernig framhaldið verður. Ég held að það liggi ljóst fyrir að það er ekki hægt að klára þennan samning í þinginu fyrir jól. Það er eðlilegt að menn taki sér tíma til að skoða málið í heild. Það er aftur á móti spurning um hvort hægt er að mæla fyrir málinu og koma því til nefndar fyrir jól,“ segir Jóhanna.

Forystumenn ríkisstjórnarinnar fóru ekki leynt með óánægju sína þegar ekki tókst að klára síðasta Icesave-samning fyrr á árinu. Spurð hvort það hafi verið röng afstaða í ljósi nýja samningsins segir Jóhanna: „Nei, þetta sýnir fyrst og fremst að aðstæður eru verulega breyttar frá því að síðasti samningur var gerður. Flest af því sem hefur orðið til þess að lækka þennan samning hefði haft áhrif til lækkunar á fyrri samninginn.“

Hún nefnir til dæmis betri heimtur úr þrotabúi Landsbankans, hagstæðari gengismun, sterkari gjaldeyrisforða og lægri fjármagnskostnað. „Það er veruleg skýring á þessum 100 milljarða mismuni sem er á þessum samningum,“ segir Jóhanna. Ekki megi heldur gleyma því að tafirnar hafi kostað sitt fyrir atvinnulífið í landinu. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×