Golf

Oosthuizen keypti traktor fyrir sigurféð á opna breska

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Louis Oosthuizen er sveitastrákur sem vann opna breska meistaramótið í golfi á dögunum. Hann var ekki lengi að byrja að eyða 850 þúsund punda verðlaunafénu sínu, hann keypti sér umsvifalaust traktor.

Oosthuizen er mikill áhugamaður um sveitastörf en hann lét setja barnasæti á traktorinn til að ala dóttur sína upp við svipaðar aðstæður og hann.

"Þetta verður mjög gaman. Ég keypti traktorinn fyrir býlið mitt. Að vera sveitastrákur er einn af stóru draumunum mínum," sagði Oosthuizen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×