Innlent

Dró úr afbrotum á árinu á höfuðborgarsvæðinu

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda helstu brota árið 2010. Þrátt fyrir að um bráðabirgatölur sé að ræða segir lögreglustjóri í tilkynningu að upplýsingarnar gefi þó góða innsýn í hvert stefnir.

Fram kemur að á höfuðborgarsvæðinu fækkaði hegningarlagabrotum um rúm 10 prósent samanborið við 2009. „Innbrotum fækkaði um fjórðung árið 2010 frá árinu á undan," segir ennfremur. „Miðað við þessar tölur voru framin um sex innbrot á dag á höfuðborgarsvæðinu árið 2010 samanborið við átta á dag árið áður. Að meðaltali voru framin tvö innbrot á dag í heimili á árinu 2010. Nauðgunum fækkaði um þriðjung á milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Ofbeldisbrotum fækkaði um tæp 13 prósent. Tæpur helmingur allra ofbeldisbrota á sér stað í Miðborg Reykjavíkur í kringum skemmtanahald um helgar. Minniháttar skemmdarverkum fækkaði lítilsháttar frá árinu á undan."

Þá segir að umferðarlagabrotum hafi fjölgað lítillilega milli ára, einkum hraðakstursbrotum. „Einnig fjölgaði brotum þar sem ekið var undir áhrifum ávana- og fíkniefna um 15 prósent en brotum vegna ölvunar við akstur fækkaði lítillega á sama tíma."

Fíkniefnabrotum fjölgaði um fimmtung milli ára en lögreglan og tollgæslan á höfuðborgarsvæðinu lögðu hald á mun minna magn fíkniefna árið 2010 en árið á undan. Það ár var reyndar óvenju mikið magn fíkniefna haldlagt. „Lagt var hald á helmingi minna magn af hassi og marihúana en árið áður. Sjö kíló af amfetamíni voru haldlögð árið 2010 samanborið við hátt í sjötíu kíló í fyrra. "




Fleiri fréttir

Sjá meira


×