Fótbolti

Gylfi á bekknum hjá Hoffenheim

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór í leik með Hoffenheim.
Gylfi Þór í leik með Hoffenheim. Nordic Photos / Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson er á bekknum þegar að lið hans, Hoffenheim, mætir Hamburg á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Gylfi skoraði tvö mörk og lagði það þriðja upp í leik Hoffenheim gegn Hannover í síðustu viku en er engu að síður á bekknum í dag.

Hoffenheim er í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með átján stig, sjö stigum á eftir toppliði Dortmund og sex á eftir Mainz. Hannover er í sjötta sæti deildarinnar með sextán stig.

Alls eru níu leikmenn fjarverandi vegna meiðsla hjá Hannover, þeirra á meðal landsliðsmaðurinn Marcell Jansen og Ruud van Nistelrooy.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×