Fótbolti

David N'Gog tryggði Liverpool sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David N'Gog fagnar öðru marka sinna í kvöld.
David N'Gog fagnar öðru marka sinna í kvöld. Nordic Photos / AFP

David N'Gog skoraði bæði mörk Liverpool í 2-0 sigri á FK Rabotnicki í fyrri leik liðanna í undankeppni Evrópudeildar UEFA.

Leikurinn fór fram í Skopje í Makedóníu en liðin mætast á ný á Anfield í næstu viku. Þeir ensku eru því í góðri stöðu fyrir síðari leikinn.

N'Gog kom Liverpool yfir strax á 17. mínútu með marki af stuttu færi í kjölfar aukaspyrnu Lucas Leiva.

Hann skoraði svo síðara markið á 58. mínútu, einnig af stuttu færi, eftir fyrirgjöf Martin Kelly frá hægri kantinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×