Fótbolti

Stórlið með Gylfa undir smásjánni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson heldur áfram að vekja athygli í Evrópuboltanum og hann er í dag orðaður við fjölda stórliða í Evrópu.

Nægir þar að nefna Atletico Madrid, Juventus, AC Milan og Man. Utd.

Gylfi hefur byrjað frábærlega með Hoffenheim í þýska boltanum og nýtt sínar mínútur til hins ítrasta. Hann hefur skorað fjögur mörk nú þegar í deildinni.

Þó svo Gylfi hafi spilað mjög vel hefur honum ekki gengið sem skildi að festa sig í sessi í byrjunarliðinu en haldi hann áfram á sömu braut verður þess örugglega ekki langt að bíða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×