Innlent

Bónusar verða í boði hjá báðum

Framkvæmda­stjóri Icelandair og forstöðumaður hjá SAS kvittuðu undir margháttað samstarf flugfélaganna í gær.
Framkvæmda­stjóri Icelandair og forstöðumaður hjá SAS kvittuðu undir margháttað samstarf flugfélaganna í gær.
Icelandair og norræna flugfélagið SAS hafa samið sín á milli um margháttað samstarf, svo sem um tengingar og þjónustu flugfélaganna á milli áfangastaða og gagnkvæm réttindi fyrir vildarklúbbsfélaga.

Stefnt er að því að snemma á næsta ári geti félagar í Vildarklúbbi Icelandair nýtt vildarréttindi sín í EuroBonus-klúbbi SAS og öfugt. Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, og Lars Sandström, forstöðumaður samstarfsmála hjá SAS, skrifuðu undir samninginn í Stokkhólmi í gær.- jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×