Rusl í Reykjavík sótt á 10 daga fresti í stað vikulega 16. desember 2010 14:39 Eftir rúmar tvær vikur tekur gildi nýtt kerfi þar sem heimilissorp er sótt sjaldnar en áður í Reykjavík
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun breytingar á sorphirðu í Reykjavík. Meðal breytinga er að á næsta ári verður hafin söfnun á flokkuðu sorpi við heimili í Reykjavík. Tvenns konar tunnur verða við hvert heimili, ílát fyrir sorp til endurvinnslu auk núverandi íláts fyrir blandað sorp. Breytingarnar ganga í gildi í áföngum árið 2011 og eru gerðar í hagræðingarskyni og til samræmis við stefnu Reykjavíkurborgar um að draga úr úrgangi og auka flokkun og endurvinnslu úrgangs. Frá og með 1. janúar 2011 verður heimilissorp sótt á 10 daga fresti í stað 7. Magn heimilissorps í Reykjavík hefur minnkað um 20% á síðastliðnum árum og því ætti breytingin að hafa óveruleg áhrif á borgarbúa. Þetta er einnig í samræmi við sorphirðutíðni í nágrannasveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.Minna bil milli sorpbíla og sorptunna Önnur breyting felst í því að stytta vegalendir milli sorphirðubíla og sorptunna en víða eru sorpílát tugi metra inni á lóðum, jafnvel bak við hús og veldur það töluverðum töfum á sorphirðu. Áætlað er að um 50% af vinnutíma starfsmanna við sorphirðu í Reykjavík hafi hingað til farið í það að ganga inn á lóðir. Til að nýta tíma starfsmanna betur og þróa betra verklag verða sorpílát frá 1. apríl 2011 sótt að hámarki 15 metra frá Sorpbíl. Vonir standa til að með tímanum styttist þessi vegalend. Borgarbúar geta þangað til keypt viðbótarþjónustu ef sækja þarf ílát lengra en 15 metra og kostar hún 4.800 krónur á ári. Annað úrræði er að færa sorpílátin á losunardögum eða flytja sorpgerðin þar sem það er hægt. Þessi aðgerð er til hagræðingar og byggist á góðri samvinnu borgarstarfsmanna og borgarbúa.Endurvinnslutunnur við hvert heimili Sú nýlunda verður tekin upp í Reykjavík að safna sorpi til endurvinnslu við hvert heimili. Reykjavíkurborg mun af þeim sökum bæta við endurvinnslutunnum í áföngum eftir mitt næsta ár og ljúka því árið 2012. Endurvinnslutunnan hefur lítil áhrif á hirðukostnað vegna hagræðingarinnar í heild og munu sorphirðugjöld því ekki hækka af þessum sökum. Síðar meir verður kynnt hvaða úrgangsflokka skuli setja í hvora tunnu fyrir sig. Einnig er lagt til að hafin verði söfnun og vinnsla á lífrænum eldhúsúrgangi árið 2013. Sú söfnun kallar ekki á viðbótartunnu heldur verður sérstakt ílát hengt inn í sorpílátið. Þessar breytingar verða kynntar ítarlega fyrir borgarbúum á næstu vikum en fyrsta breytingin gengur í gildi í byrjun janúar.
Mest lesið Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Innlent Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Innlent Opinn en mannlaus veitingastaður Innlent Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Erlent Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Innlent Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Fethullah Gülen er látinn Erlent Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Innlent Fleiri fréttir Grindavík opnuð en lögreglan ósátt við upplýsingagjöf Lygavaðall um Þórdísi og enginn sakni vinstrisins Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni Enn að átta sig á breyttri stöðu eftir tapið fyrir Þórdísi Mun ræða við formenn flokkanna um fjárlögin Dagmar Ýr tekur við stöðu sveitarstjóra af Birni Sat yfir líki í fjóra sólarhringa Grindavíkurbær nú opinn almenningi Opinn en mannlaus veitingastaður Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Sjá meira