Innlent

Tveir fíkniefnasalar fyrir dóm

Mennirnir voru að selja marijúana.
Mennirnir voru að selja marijúana.

Tveir ungir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, meðal annars fyrir fíkniefnasölu.  Alls eru fjórir ungir menn ákærðir í málinu. Einn þeirra ók um götur Akureyrar undir áhrifum fíkniefna þar til lögreglan stöðvaði akstur hans. Hinir þrír voru í bílnum með honum, einn með lítilræði af marijúana en hinir tveir með mun meira magn af efninu, bæði í bílnum og heima hjá sér.

Öðrum hinna síðastnefndu er gefið að sök að hafa nokkrum vikum áður keypt um 150 grömm af marijúana og selt hluta efnisins. Hinn aðstoðaði við söluna. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×