Fótbolti

Hogdson: Við spiluðum vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roy Hodgson, stjóri Fulham.
Roy Hodgson, stjóri Fulham. Nordic Photos / Getty Images

Roy Hodgson, stjóri Fulham, hrósaði sínum mönnum þrátt fyrir að liðið tapaði í kvöld fyrir Atletico Madrid í úrslitaleik Evrópudeildar UEFA í kvöld.

Diego Forlan skoraði bæði mörk Atletico í 2-1 sigri í framlengdum leik. Simon Davies skoraði mark Fulham.

„Við verðum að hrósa þeim en mér fannst við spila vel," sagði Hodgson. „Það var allt útlit fyrir að úrslitin myndu ráðast í vítaspyrnukeppni sem við hefðum gjarnan viljað fara í."

„En mér fannst við spila vel á löngum köflum í síðari hálfleik og í framlengingunni. Það er ekki hægt að vera ánægður eftir tapleiki en ég get ekkert gagnrýnt mína leikmenn eftir þennan leik."

„Strákarnir eiga að vera stoltir af tímabilinu og kvöldinu þó svo að við fengum ekki að lyfta bikarnum. Við vildum vinna og reyndum allt sem við gátum. Það sást inn á vellinum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×